Hengill Ultra ræst kl 20 í kvöld
Hengill Ultra ræst í Hveragerði í kvöld
1.050 þátttakendur frá 38 þjóðlöndum skráðir til leiks
Hengill Ultra, einn stærsti utanvegahlaupaviðburður landsins, hefst í Hveragerði í kvöld þegar ræst verður í 106 kílómetra vegalengdina klukkan 20:00 frá Péturstorgi í miðbæ Hveragerðis.
Alls eru 1.050 þátttakendur frá 38 þjóðlöndum skráðir til leiks í hlaupinu í ár sem er haldið í fimmtánda sinn. Aldrei áður hafa fleiri erlendir þátttakendur verið skráðir í Hengil Ultra en um 300 hlauparar koma erlendis frá. Þá hafa einnig aldrei fleiri verið skráðir í 53 km og 106 km vegalengdirnar. Og við erum líka að slá skráningarmet í 5km sem er afar ánægjulegt.
Keppendur geta valið um fimm vegalengdir; 5 km, 10 km, 26 km, 53 km og 106 km. Ræsing í 106k fer fram í kvöld föstudag kl 20:00. Ræsingar í aðrar vegalengdir fara fram á morgun laugardag og sú fyrsta kl 8 um morguninn. Búist er við mikilli stemningu í Hveragerði alla helgina þar sem fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir bæði þátttakendur og gesti.
Hengill Ultra hefur á síðustu árum skipað sér í sess sem einn þekktasti utanvegahlaupaviðburður landsins og laðar nú að hlaupara alls staðar að úr heiminum til að upplifa íslenska náttúru og einstakar hlaupaleiðir á Hengilssvæðinu.
Upplýsingar fyrir keppendur í hverri leið má finna hér:
10km leið – keppnisupplýsingar
26km leið – keppnisupplýsingar








