Frábær leið í fallegu umhverfi Reykjavíkur
-
Skráningargjald
Þátttökugjald:
Forskráðir fyrir sunnudaginn 28. júní:
- 3.000 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2010 og fyrr2
- Frítt fyrir 15 ára og yngri (f. 2011 og síðar)
Skráning eftir sunnudaginn 28. júní:
- 4.000 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2010 og fyrr)
- 1000 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 2011 og síðar)
Skráningu lýkur miðvikudaginn 29. júlí kl. 19:30.
Afhending keppnisgagna:
Útilíf
Skeifan 11d
108 ReykjavíkMiðvikudagur 29. júlí
kl 12:00-17:00Einnig verður hægt að ná í keppnisgögn á keppnissvæðinu miðvikudaginn 29. júlí kl 18:00-19:30
- Gögn
-
Leiðarlýsing
Hlaupið hefst við Rafstöðvarheimilið í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal.
Hlaupaleiðin er 10 km, löglega mæld af FRÍ. Heildarfall (lækkun) í hlaupaleið er um 9 metrar sem er löglegt, en 10 km hlaup má falla/lækka sem nemur einum metra fyrir hvern kílómetra til að teljast innan löglegra marka. Hlaupið hefst efst í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal og hlaupið er upp Elliðaárdalinn undir brúna við stífluna, að Fylkisvelli og Árbæjarsundlaug og meðfram Fylkisvelli og síðan til hægri yfir brúna. Síðan göngustígar niður Elliðaárdalinn, alla leið að undirgöngum inn í Fossvog, framhjá Víkingsheimili, á hjólastíg mest alla leið í Fossvogsdal og snúið við rétt áður en komið er að Svartaskógi og svo göngustígur til baka, framhjá Víkingsheimili, undirgöng og beint yfir Elliðaárdalinn á Rafstöðvarveg, framhjá gömlu rafstöðinni og endasprettur áfram og aðeins inn í rafstöðvabrekkuna.
Leiðin er teiknuð með það í huga að vera skemmtileg í flottu umhverfi að sumarkvöldi og samtímis hröð og því góð til bætinga.
-
Hæðarlýsing & drykkjarstöðvar
Hlaupaleiðin er skemmtileg og að mestu flöt. Hefst með smá hækkun fyrstu 2 km upp Elliðaárdalinn og síðan niður í móti rúma 2 km niður að undirgöngum inní Fossvogsdalinn, nánast flatt þar fram og til baka og svo inní Elliðaárdalinn aftur. Dálítil hækkun er að endamarki en það klárar fólk með stæl. Í heild er lækkun samtals 9 metrar og því er hlaupið talið gott til bætinga í 10km.
-
Dagskrá & Bílastæði
Start kl 20:00










