Frábær Garmin Eldslóðin í blíðskaparveðri við Vífilsstaði

Sigurður Örn Ragnarsson og Aðalheiður Ármannsdóttir sigruðu í 29 km – glæsilegur endir á keppnistímabili Víkingamóta

Garmin Eldslóðin fór fram laugardaginn 12. september, við Vífilsstaði í Garðabæ og á stígum og slóðum Heiðmerkur og nágrennis. Um 400 manns tóku þátt í hlaupinu og tókust á við þrjár vegalengdir: 5 km, 10 km og 29 km. Hlaupið fór fram í blíðskaparveðri og aðstæður voru eins og best verður á kosið.

Skipuleggjendur í sjöunda himni

Garmin Eldslóðin markar lok keppnistímabils Víkingamóta 2026 og voru skipuleggjendur í sjöunda himni með daginn.

„Við hefðum varla getað óskað okkur betri endis á keppnistímabilinu. Veðrið lék við okkur, stemningin var frábær og það var ótrúlega gaman að sjá hlauparana takast á við Eldslóðina. Svona viðburður verður ekki til nema með hjálp ótrúlega margra og við erum gríðarlega þakklát öllum sem lögðu hönd á plóg,“ segja skipuleggjendur Víkingamóta.

Afrek dagsins

Í lengstu vegalengd dagsins, 29 km, sigraði Sigurður Örn Ragnarsson í karlaflokki á 2:00:28. Brendon Lee varð annar á 2:10:50 og Haukur Elvar Hafsteinsson þriðji á 2:12:21.

Í kvennaflokki sigraði Aðalheiður Ármannsdóttir á 2:19:09, Jenný Harðardóttir varð önnur á 2:30:42 og Aðalheiður Aðalsteinsdóttir þriðja á 2:35:24.

Í 10 km sigraði Agnar Darri Sverrisson í karlaflokki á 39:47 og Hulda Fanný Pálsdóttir í kvennaflokki á 43:52.

Í 5 km sigraði Egill Trausti Ómarsson í karlaflokki á 25:30 og Roksana Brzezinska í kvennaflokki á 30:57.

Veglegir vinningar

Diljá Ólafsdóttir var dregin út úr hópi skráðra þátttakenda og vann Garmin Forerunner úr ásamt 50.000 kr. inneign hjá Útilífi.

Einnig voru dregnir út fjölmargir vinningar frá Útilífi, Ofar og 66°Norður og afhentir á staðnum. Þau sem komust á verðlaunapall í vegalengdunum þremur fengu jafnframt veglega vinninga frá Garminbúðinni.

Garmin Eldslóðin hefur frá upphafi verið krefjandi og fjölbreytt utanvegahlaup í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Hlaupið er ræst við Vífilsstaði og leiðirnar liggja meðal annars um svæðið við Vífilsstaðavatn og Vífilsstaðahlíð og áfram inn á slóðir við Heiðmörk, Búrfellsgjá, Búrfell og Helgafell.

Kærar þakkir

Víkingamót þakka Garmin, aðalstyrktaraðila Eldslóðarinnar, og öðrum styrktar- og samstarfsaðilum hlaupsins, Útilífi, Hertz, Powerade, Ofar og 66°Norður, fyrir ómetanlegan stuðning og gott samstarf. Framlag þeirra á stóran þátt í því að hægt sé að halda viðburð sem þennan með glæsilegum hætti.

Skipuleggjendur þakka jafnframt öllum sjálfboðaliðum og starfsfólki sem lagði hönd á plóg og stuðlaði að því að keppnin færi vel fram.

Sérstakar þakkir fá íbúar, göngu-, hjólreiða- og annað útivistarfólk fyrir þá tillitssemi sem hlaupurum og brautarmerkingum var sýnd meðan keppnin fór fram. Brautarmerkingarnar eru mikilvægt öryggisatriði og starfsfólk hlaupsins sér um að fjarlægja þær og ganga frá svæðinu að keppni lokinni.

Með Garmin Eldslóðinni lýkur keppnistímabili Víkingamóta árið 2026. Skipuleggjendur þakka keppendum, sjálfboðaliðum, samstarfsaðilum og öllum öðrum sem komu að viðburðinum fyrir frábæran lokadag við Vífilsstaði og eftirminnilegt keppnistímabil.

Úrslit Garmin Eldslóðarinnar 2026

29 km

Karlar

  • Sigurður Örn Ragnarsson — 2:00:28
  • Brendon Lee — 2:10:50
  • Haukur Elvar Hafsteinsson — 2:12:21

Konur

  • Aðalheiður Ármannsdóttir — 2:19:09
  • Jenný Harðardóttir — 2:30:42
  • Aðalheiður Aðalsteinsdóttir — 2:35:24

10 km

Karlar

  • Agnar Darri Sverrisson — 39:47
  • Þorlákur Rafnsson — 40:43
  • Magnús Stefánsson — 41:22

Konur

  • Hulda Fanný Pálsdóttir — 43:52
  • Kristin Edda Sveinsdóttir — 47:23
  • Hulda Guðný Kjartansdóttir — 48:28

5 km

Karlar

  • Egill Trausti Ómarsson — 25:30
  • Friðrik Ómarsson — 27:05
  • Ari Lúkas Davidsson — 29:57

Konur

  • Roksana Brzezinska — 30:57
  • Júlía Oddsdóttir — 31:23
  • Karen Gewalt — 32:58

Öll úrslit og tímar úr Garmin Eldslóðinni 2026 má finna hér.

Öll úrslit og tímar úr hlaupinu hafa jafnframt verið send til International Trail Running Association (ITRA) og UTMB Index. Keppendur geta því fylgst með uppfærslu á árangri sínum og hlaupastigum á viðkomandi síðum.

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

10.10.2026

Hengill Ultra 2027 – forskráning opnar í 72 klukkustundir

15.09.2026

Frábær Garmin Eldslóðin í blíðskaparveðri við Vífilsstaði

08.09.2026

Dagskrá Garmin Eldslóðin 2026

08.09.2026

325 hlauparar skráðir – ætlar þú að vera með?

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik