Skemmtileg leið fyrir skemmtiskokk
Innifalið í mótsgjaldi:
• Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
• Þátttökumedalía og sigurverðlaun.
• Drykkir á drykkjarstöð við Reykjadalskaffi.
• Brautar- og öryggisgæsla.
• Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
• Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
• Tímataka og númer.
10km hlaupið er ræst í Breiðumörk, aðalgötunni í Hveragerði, við ráðhús bæjarins. Hlaupið er framhjá Skyrgerðinni, gegnum lystigarðinn og upp árgilið meðfram Varmá framhjá gistiheimilinu Frosti og Funa, upp brekkuna og yfir götuna í átt að Hamrinum. Hlaupinn er skógarstígur sunnan Hamarsins og upp á hraunkantinn, út á gamla Kambaveginn neðan Hrauntungu (sumarhús). Gamli vegurinn hlaupinn að reiðstíg sem liggur norður yfir Hamarinn, samsíða þjóðveginum. Reiðstígurinn hlaupinn inn í dalinn í átt að Hamarshallarsvæðinu þar til komið er á göngustíg sem liggur að bílaplani við Varmá og Dalakaffi innst í dalnum. Þar er hlaupið yfir brúna og hlaupið meðfram ánni tilbaka í áttina að Hveragerði. Þegar hlaupið kemur á móts við svæði hestamannafélagsins í Hveragerði er hlaupið yfir Varmá á vaði og þar verða allir blautir í fæturna. Síðan er hlaupið áfram að bílaplaninu þar sem áður stóð Hamarshöllin og þaðan niður við hlíðina niður að og inn í Hveragerði, aftur framhjá Frost og funa meðfram árfarveginum og í gegnum lystigarðinn. Þaðan inn á Breiðumörk og í mark.
Smelltu hér til að sjá dagskrána fyrir Hengil Ultra keppnina.
Hér fyrir neðan er kort sem sýnir bílastæði og Byrjunarreit/Endastöð á hlaupunum ásamt staðsetningu EXPO Gymnasium í íþróttahúsinu við Skólamörk.