26 kílómetrar yfir holt og hæðir. Þessi leið er krefjandi og ekki fyrir byrjendur
Innifalið í mótsgjaldi:
• Grillaður hamborgari og drykkur í markinu.
• Þátttökumedalía og sigurverðlaun.
• Brautar- og öryggisgæsla.
• Drykkir og matur á drykkjarstöðinni við Ölkelduháls
• Salernisaðstaða við Ölkelduháls
• Sturtuaðstaða og frítt í sund í sundlauginni Laugarskarði.
• Aðgangur að lækni og hjúkrunarfólki í Hveragerði.
• Tímataka og númer.
26km hlaupið er ræst í Breiðumörk, aðalgötunni í Hveragerði, við ráðhús bæjarins. Hlaupið er framhjá Skyrgerðinni, gegnum lystigarðinn og upp árgilið meðfram Varmá framhjá gistiheimilinu Frosti og Funa, upp brekkuna og yfir götuna í átt að Hamrinum. Hlaupinn er skógarstígur sunnan Hamarsins og upp á hraunkantinn, út á gamla Kambaveginn neðan Hrauntungu (sumarhús). Gamli vegurinn hlaupinn að reiðstíg sem liggur norður yfir Hamarinn, samsíða þjóðveginum. Reiðstígurinn hlaupinn inn í dalinn í átt að Hamarshallarsvæðinu þar til komið er á göngustíg sem liggur að bílaplani við Varmá og Dalakaffi innst í dalnum. Þar er farin stikuð leið upp Rjúpnabrekkur og inn Reykjadalinn. Þá er haldið upp Klambragil úr Reykjadalnum við heita lækinn og inn á gönguslóða að Ölkelduháls þar sem er drykkjarstöð og salernisaðstaða. Síðan er sama leið hlaupin til baka og endað í markinu í Breiðumörk þar sem hlaupið var ræst.
Það er við öllu að búast á þessari leið og veður getur breyst með litlum fyrirvara. Það er því nauðsynlegt að vera við öllu búin.
Hækkun er um 630m.
Smelltu hér til að sjá dagskrána fyrir Hengil Ultra keppnina.
Hér fyrir neðan er kort sem sýnir bílastæði og Byrjunarreit/Endastöð á hlaupunum ásamt staðsetningu EXPO Gymnasium í íþróttahúsinu við Skólamörk.