Mótið er byrjað! Bein útsending og merktu #hengill23 á Twitter

Salomon Hengill Ultra mótið er byrjað! Nú í morgun lögðu af stað hetjurnar í 100 mílu hlaupinu og létu smá regn ekki á sig fá. Framundan er frábær hlaupahelgi í góðum félagsskap. Hægt er að fylgjast beint með hlaupinu á visir.is og munu ýmsir góðir gestir koma fram og spjalla um gang mála. Smelltu hérna til þess að horfa á hlaupið.

Hlaupagarpar í Hengill Ultra 2023
Hlaupagarpar í Hengill Ultra 2023

Kort af svæði og dagskrá í dag, föstudag

Hérna fyrir neðan er svo kort af ýmsum stöðvum og stöðum í kringum keppnina. Helstu punktar í dagskrá fyrir keppnina í dag er svohljóðandi:

FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ HVERAGERÐI

  • 09:30 Öryggisskoðun og brautarfundur
  • 10:00 Kynning og ræsing 100 mílur (161 km)
  • 17:00 Hengill Expó opnar í íþróttahúsinu
  • 17:00 -23:00 Afhending gagna í Expó höllinni

Smelltu hérna til þess að skoða ýtarlegri dagskrá.

Salomon Hengill Ultra Kort af helstu stöðum í Hveragerði

Sendu kveðju með #hengill23 á Twitter

#Hengill23 á Twitter kemur kveðjum frá vinum og vandamönnum allstaðan af úr heiminum í beina útsendingu á Vísir.is útsendingu. Þar er líka hægt að senda uppfærðar fréttir breint frá hlaupurum í brautinni frá fólki sem er að fylgjast með.

Hlökkum til að sjá ykkur öll og húrra fyrir frábærri hlaupahelgi!

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

07.06.2024

Dagskrá 2024

28.05.2024

Upplýsingafundur um 10K og 5K í dag

28.05.2024

Snjór í efstu hlaupaleiðum

19.05.2024

Uppselt í 26km

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2024
Website by: Gasfabrik