FYRST MEÐ RAFMAGNS HJÓLAFLOKK

KIA Gullhringurinn fer fram 11. júlí og verður fyrsta stóra keppni sumarsins. Undirbúningur er kominn á fullt, grindur, fánar, grill og stemmning á leiðinni upp eftir. Um það bil þrjúhundruð keppendur eru skráðir til leiks en skipuleggjendur búast við um sex hundruð keppendum og annað eins af gestum í kringum mótið í ár. Umferð á svæðinu er í sögulegu lágmarki þar sem ferðaþjónustan er hvergi komin í það form sem hún var fyrir Covid og því mega keppendur eiga von á lítilli annarri umferð í brautinni þetta árið. 

FYRSTA KEPPNIN Á ÍSLANDI TIL AÐ OPNA FYRIR RAFMAGN
En það er þó ekki stærsta breytingin því í ár brýtur KIA Gullhringurinn blað í sögu hjólreiðamóta á Íslandi og býður upp á sérstakan keppnisflokk rafmagnshjóla. „Það skapaðist mikil umræða um þetta í fyrra en við ákváðum að láta árið í ár verða fyrsta árið okkar með rafmangshjóla flokk sagði Þórir Erlingsson einn af skipuleggjendum KIA Gullhringsins. „Þetta er nú bara fyrst og síðast liður í því að vaxa með sportinu á Íslandi. Hópur rafhjólaeigenda fer sístækkandi og við viljum bjóða þetta fólk velkomið. KIA Gullhringurinn er ekki hluti af Íslandsmeistaramótinu heldur erum við þátttöku keppni og miklu frekar hjólareiðaviðburður með keppni frekar en keppni ein og sér“. 

STÆRSTA GÖTUJÓLAKEPPNI ÁRSINS 
KIA Gullhringurinn hefur í gegnum árin verið stærsta götuhjólakeppni á Íslandi og hundruðir keppenda taka þátt ár hvert. Hjólreiðar hafa vaxið mjög sem íþrótt á Íslandi síðustu ár og núna síðustu misseri hefur orðið alger sprenging í innflutningi og sölu á rafmagnshjólum og það á við á heimsvísu núna. Þannig er komið að framleiðendur hafa ekki við að framleiða upp í pantanir verslana um allan heim. 

RISAVIÐBURÐUR Á LAUGARVATNI 
Keppni hefst og enda á Laugarvatni og njóta keppendur og áhorfendur gestrisni hótel og veitingastaða á Laugarvatni á meðan keppninni stendur. Verslunarrekendur á Laugarvatni hafa marg fullyrt að keppni sé stærri í verslun á Laugarvatni heldur en Verslunarmannahelgin. 

SKRÁNING 
Seinna í vikunni verður opnað skráningu í fyrsta rafmagnhjóla start í starti fyrir C flokk KIA Gullhringsins sem er Brons hringurinn sem er 48KM og að hluta til á möl yfir Reykjaheiðina. Mótstjórn gefur sér þó heimild til að færa þennan tíma þegar nær dregur til að tryggja að flokkarnir blandist ekki. C flokkurinn er ræstur 20 mínútum á eftir A og B flokk sem hjól aðra leið en það er gert til þess að tryggja það að rafhjól verði ekki inn í drafti fremstu keppenda í A og B flokki. 

Skráningin rafhjóla flokksins opnar á föstudag en þá eru um það bil tvær vikur í KIA Gullhringinn 2020. 

Hér má sjá hverir eru skráðir til leiks í KIA Gullhringinn í ár .https://bit.ly/3d23fAv

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

01.12.2023

Skráning í Hengil Ultra hefst í dag

23.09.2023

Dagskrá NOW Eldslóðin 2023

30.08.2023

Landsnet MTB viðburður færður vegna veðurs

30.08.2023

NOW Eldslóðin færð vegna veðurs

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2024
Website by: Gasfabrik