Frábær þátttaka og spennandi keppni í Hengill Ultra 2026

Hengill Ultra fór fram um helgina í 15. sinn við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður á Hengilssvæðinu. Yfir eitt þúsund hlauparar lögðu leið sína á svæðið og spreyttu sig á vegalengdum frá 5 km upp í 106 km þar sem bæði reyndir utanvegahlauparar og nýliðar tókust á við fjöll, dali, hraun og einstaka náttúrufegurð svæðisins. Hlaupið gekk vel þrátt fyrir bleytu á brautinni eftir úrkomu síðustu daga. Veður fór batnandi þegar leið á daginn og mikill fjöldi gesta lagði leið sína til Hveragerðis til að fylgjast með keppninni og taka á móti hlaupurum í mark.
Í fyrsta sinn í ár gátu áhorfendur og aðstandendur fylgst með öllum hlaupurum í 53K og 106K keppnunum á korti og fengið nákvæma staðsetningu í rauntíma ásamt skemmtilegum upplýsingum á meðan hlaupunum stóð. Þessi fídus fékk frábærar viðtökur og fengum við mikið af heimsóknum inn á síðuna.

Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.
Yfir 1.000 hlauparar tóku þátt í Hengill Ultra í ár og keppendur komu frá þrjáttíu og átta löndum til að spreyta sig á fimm vegalengdum um eitt fjölbreyttasta og fallegasta utanvegahlaupasvæði landsins.




Tómas Aron sigraði með yfirburðum í 106 kílómetrunum
Lengsta vegalengd mótsins, 106 km Hengill Ultra, reyndi verulega á þátttakendur enda um að ræða eitt erfiðasta utanvegahlaup landsins. Tómas Aron Viggósson sigraði sannfærandi á tímanum 14:34:14 eftir afar sterkt hlaup frá upphafi til enda. Mafalda Sigmarsson sigraði í flokki kvenna og kom í mark á tímanum 18:59:13.
Þorleifur Þorleifsson hafnaði í öðru sæti á 15:48:14 og Hlynur Jóhannsson tryggði sér þriðja sætið á 15:59:52. Tómas náði rúmlega klukkustundar forskoti á næsta keppanda og var einn af fáum sem hélt mjög jöfnum hraða yfir alla vegalengdina. Í öðru sæti kvenna var Christine Pich á tímanum 21:08:18 en það voru einungis hún og Mafalda sem náðu að klára brautina af þeim konum sem hófu keppni.
| Sæti | Nafn | Tími |
|---|---|---|
| 1 | Tómas Aron Viggósson | 14:34:14 |
| 2 | Þorleifur Þorleifsson | 15:48:14 |
| 3 | Hlynur Jóhannsson | 15:59:52 |
| 4 | Tomas Jacobsen | 16:32:05 |
| 5 | Patrick Hansen | 16:43:22 |
| 6 | Egill Trausti Ómarsson | 17:27:21 |
| 7 1. sæti í kvennaflokki | Mafalda Sigmarsson | 18:59:13 |
| 8 | Eric Lemmens | 19:32:33 |
| 9 2. sæti í kvennaflokki | Christine Pich | 21:08:18 |
| 10 | Óskar Fannar Vilmundarson | 21:13:31 |
Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.
Grétar sigraði 53K hlaupið
Mikil þátttaka var í 53 km hlaupinu þar sem Grétar Guðmundsson sýndi styrk sinn á tæplega fimm klukkustunda hlaupi og kom fyrstur í mark á 4:44:54.
Baráttan um næstu sæti var hörð en Sindri Pétursson varð annar á 4:57:45 og Brynjar Vilhjálmsson þriðji á 5:00:59. Athygli vakti einnig frammistaða Dalrósar Ingu Ingadóttur sem varð fimmta í heildina og fyrsta kona í mark.
| Sæti | Nafn | Tími |
|---|---|---|
| 1 | Grétar Guðmundsson | 04:44:54 |
| 2 | Sindri Pétursson | 04:57:45 |
| 3 | Brynjar Vilhjálmsson | 05:00:59 |
| 4 | Sigfinnur Björnsson | 05:35:34 |
| 5 1. sæti í kvennaflokki | Dalrós Inga Ingadóttir | 05:51:00 |
| 6 | Willy Blumenstein | 05:51:00 |
| 7 | Timur Fazõlov | 05:56:23 |
| 8 | Nati Noyman | 05:58:58 |
| 9 | Adam Komorowski | 06:01:23 |
| 10 | Sigurður Ísak Ævarsson | 06:05:51 |
Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.




Yfir 400 manns tóku þátt í 26K leiðinni í Hengil Ultra 2026
26 km vegalengdin var fjölmennasta keppni mótsins og þar var mikill hraði á fremstu mönnum. Egill Gunnarsson sigraði á glæsilegum tíma, 1:47:24, og var rúmum þremur mínútum á undan Árna Birni Höskuldssyni sem varð annar.
Guðni Siemsen Guðmundsson tryggði sér þriðja sætið og Hildur Aðalsteinsdóttir varð sjötta í heildina og fyrsta kona í mark.
| Sæti | Nafn | Tími |
|---|---|---|
| 1 | Egill Gunnarsson | 01:47:24 |
| 2 | Árni Björn Höskuldsson | 01:50:29 |
| 3 | Guðni Siemsen Guðmundsson | 01:54:24 |
| 4 | Börkur Þórðarson | 01:58:01 |
| 5 | Magnús Stefánsson | 01:59:39 |
| 6 1. sæti í kvennaflokki | Hildur Aðalsteinsdóttir | 01:59:56 |
| 7 | Sölvi Snær Egilsson | 02:00:22 |
| 8 | Sigurður Bjarnason | 02:01:12 |
| 9 | Jónas Bjartur Kjartansson | 02:01:36 |
| 10 | Magnús Helgi Sigurðsson | 02:02:44 |
Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.
Mikill hraði á 10 km brautinni
10 km hlaupið bauð upp á hraða keppni þar sem Gústaf Sæland kom fyrstur í mark á 44:40. Hallgrímur Orri Pétursson fylgdi fast á eftir í öðru sæti á 46:59 og Andri Isaksen varð þriðji.
Sandra Dís Pálsdóttir hafnaði í tíunda sæti í heildina og var jafnframt fyrsta kona í mark.
| Sæti | Nafn | Tími |
|---|---|---|
| 1 | Gústaf Sæland | 00:44:40 |
| 2 | Hallgrímur Orri Pétursson | 00:46:59 |
| 3 | Andri Isaksen | 00:48:11 |
| 4 | Mar Thorarinsson | 00:48:31 |
| 5 | Finnur Orri Margeirsson | 00:48:47 |
| 6 | Ari Mar Fritzson | 00:49:05 |
| 7 | Óskar Ásgeirsson | 00:49:10 |
| 8 | Loftur Ásmundsson | 00:49:44 |
| 9 | Sölvi Valdimarsson | 00:50:36 |
| 10 1. sæti í kvennaflokki | Sandra Dís Pálsdóttir | 00:50:48 |
Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.
Ungir hlauparar settu svip sinn á 5 km keppnina
Í 5 km hlaupinu var þátttaka ungra hlaupara áberandi. Marek Jerchel sigraði á tímanum 26:18 en Mehmet Tibet Altunal varð annar og Ólafur Ingi Kristinsson þriðji.
Margir af efstu keppendum voru á grunn- og unglingaskólaaldri og yngsti keppandinn var 5 ára sem lofar góðu fyrir framtíð utanvegahlaupa á Íslandi.
| Sæti | Nafn | Tími |
|---|---|---|
| 1 | Marek Jerchel | 00:26:18 |
| 2 | Mehmet Tibet Altunal | 00:29:34 |
| 3 | Ólafur Ingi Kristinsson | 00:30:08 |
| 4 | Snorri Freyr Steinarsson | 00:30:15 |
| 5 | Lárus Jóhann Steinarsson | 00:30:29 |
| 6 | Victor de Galbert | 00:30:35 |
| 7 1. sæti í kvennaflokki | Elísabet Þóra Óðinsdóttir | 00:30:38 |
| 8 | Elias de Galbert | 00:30:38 |
| 9 | Baldvin Snær Arndísarson | 00:30:43 |
| 10 | Þorvaldur Snorrason | 00:30:44 |
Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.
Frábær helgi og sannkölluð hlaupaveisla
Keppendur fengu að takast á við fjölbreytt landslag, krefjandi klifur og tæknilega kafla sem gera Hengilssvæðið að einstökum vettvangi fyrir fjallahlaup. Mikil þátttaka, sterk afrek og frábær stemning meðal hlaupara og sjálfboðaliða gerðu mótið að eftirminnilegri upplifun fyrir alla sem að því komu.
Við þökkum öllum keppendum, styrktaraðilum okkar, Hveragerðisbæjar, starfsfólki, sjálfboðaliðum og velunnurum hjartanlega fyrir frábæra hlaupahelgi og prýðisgott 15. ára afmæli keppninnar. Keppnin er marga mánuði í undirbúningi og skilar það sér allt þegar við sjáum keppendur, vini, aðstandendur og fjölskyldur koma saman og njóta samverunnar í fallegu landslagi Hengilssvæðisins og Hveragerðis.
Sjáumst í næstu keppni 2027!








