Nýr kafli fyrir Reykjavík Trail

Reykjavík Trail gengur nú inn í nýjan kafla með nýjum hlaupahaldara, nýju skráningarkerfi og nýrri dagsetningu.

Nýir umsjónaraðilar hlaupsins eru Víkingamótin, sem hafa um árabil staðið að skipulagningu utanvegahlaupa á Íslandi, þar á meðal Hengill Ultra Trail, einu rótgrónasta trail hlaupi landsins.

Markmiðið er að byggja áfram á þeim góða grunni sem hefur verið lagður og þróa Reykjavík Trail áfram sem skemmtilegt, aðgengilegt og vandað utanvega hlaup í hjarta Reykjavíkur.

Sem hluti af þessum breytingum hefur hlaupið verið fært til þriðjudagsins 14. júlí 2026, og verður nú hluti af Víkingamótaröðinni. Með því viljum við skapa enn betri upplifun fyrir þátttakendur, samstarfsaðila og alla þá sem vilja njóta skemmtilegs sumarkvölds á hlaupum í og við Reykjavík.

Jafnframt flyst skráningarkerfið yfir á netskraning.is, sem verður nýr skráningarvettvangur hlaupsins.

Mikilvægt fyrir þau sem þegar hafa skráð sig:
Allar gildar skráningar sem áður voru gerðar í gegnum hlaup.is verða fluttar yfir í nýja kerfið og halda fullu gildi. Það er því ekki þörf á að skrá sig aftur.

Ræsingartímar hafa jafnframt verið uppfærðir:

• 25 km – ræst kl. 18:00
• 15 km – ræst kl. 18:10
• 5 km – ræst kl. 18:20

Reykjavík Trail leggur áherslu á að bjóða upp á aðgengilegar og skemmtilegar vegalengdir fyrir sem flesta. Lögð verður áhersla á góða stemningu, fallegar leiðir og sumarlegt hlaup í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins — aðeins örfáum mínútum frá miðborg Reykjavíkur.

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi skráningar eða breytingarnar er velkomið að hafa samband við okkur á info@vikingamot.is.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur á ráslínu 14. júlí 2026 kl 18:00 við Rafstöðvarheimilið í Elliðarárdal, Reykjavík.

Reykjavík Trail Hlaup

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

22.06.2026

Nýr kafli fyrir Reykjavík Trail

07.06.2026

Frábær þátttaka og spennandi keppni í Hengill Ultra 2026

05.06.2026

Hengill Ultra ræst kl 20 í kvöld

02.06.2026

Upplýsingar fyrir keppni – Hengill Ultra Trail 2026

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik