KIA Gullhringurinn í beinni útsendingu!

KIA Gullhringurinn
KIA Gullhringurinn

Við verðum í beinni útsendingu hérna á facebook síðu KIA Gullhringsins klukkan 12:30 frá KIA sýningarsalnum Krókhálsi 13 þar sem við opnum fyrir skráningu í KIA GULL 2019 – vertu með á staðnum eða hér á FB

KIA Gullhringurinn er umfangsmesta og ein vinsælasta og skemmtilegasta hjólreiðakeppni landsins. Keppnin er haldin á Laugarvatni ár hvert og hjólað um margar þekktustu náttúruperlur Íslands um leið og hjólað er um þekktustu söguslóðir þjóðarinnar, Skálholt, Bræðratungu svo ekki sé nú minnst á Þingvelli.

Mottó KIA Gullhringsins er “Allir hjóla, allir vinna og allir velkomnir” og er hægt að velja sér vegalengd eftir getu hvers og eins úr þremur mismunandi keppnisstigum. Allt þekktasta hjólreiðafólk landsins hefur hjólað KIA Gullhringinn og það sem skemmtilegra er að nýliðar í sportinu hafa notað KIA Gullhringinn sem fyrstu keppnina sína og þannig formlega innkomu sína í sportið.

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

01.12.2023

Skráning í Hengil Ultra hefst í dag

23.09.2023

Dagskrá NOW Eldslóðin 2023

30.08.2023

Landsnet MTB viðburður færður vegna veðurs

30.08.2023

NOW Eldslóðin færð vegna veðurs

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2024
Website by: Gasfabrik