Garmin Eldslóðin – Skilmálar

Garmin Eldslóðin áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum fyrirvaralaust.

  1. Garmin Eldslóðin ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í hlaupinu, hvorki á meðan keppninni stendur né í tengslum við hana. Þá ábyrgist Eldslóðin eða starfsfólk þess, sjálfboðaliðar og samstarfsaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt, andlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku í keppninni.
  2. Þátttökugjöld í Garmin Eldslóðinni eru ekki endurgreidd en hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu á meðan rafræn skráning er opin. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld keppna fram á næsta ár.
  3. Ef Eldslóðin fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í keppnina ekki verða endurgreidd.

Að viðauka við keppnisreglur og skilmála Garmin Eldslóðarinnar skulu allir keppendur skuldbinda sig til að:

  1. Hafa stundað viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
  2. Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
  3. Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda ENGU rusli á leiðinni nema við drykkjarstöðvar í ruslatunnur.
  4. Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
  5. Hafa með sér næga næringu og vökva til að klára keppnina.
  6. Sýna öðrum keppendum og vegfarendum í brautinni virðingu og tillitssemi á leiðinni.
  7. Hafa keppnisnúmer ávallt sýnileg allan tímann.
  8. Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð og þar til önnur viðeigandi hjálp hefur borist.
  9. Keppnisstjóri og framkvæmdastjórn keppninnar ber ekki ábyrgð á keppendum vegna utanaðkomandi þátta eins og veðri eða náttúruhamfara (Force Majeure).
  10. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi koma upp.
  11. Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.
  12. Keppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stöðva keppnina vegna ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi aðstæðna.

Allar reglur Eldslóðarinnar er hægt að finna hér.

Umgjörð og dagskrá Garmin Eldslóðarinnar er hægt að finna hér.

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

14.09.2024

Úrslit Garmin Eldslóðin

10.09.2024

Matarvagnar og DJ Victor

10.09.2024

Afhending gagna á föstudag

08.08.2024

Dagskrá Garmin Eldslóðin 2024

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2024
Website by: Gasfabrik