Garmin Eldslóðin – Skilmálar
Garmin Eldslóðin áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum fyrirvaralaust.
- Garmin Eldslóðin ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í hlaupinu, hvorki á meðan keppninni stendur né í tengslum við hana. Þá ábyrgist Eldslóðin eða starfsfólk þess, sjálfboðaliðar og samstarfsaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt, andlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku í keppninni.
 - Þátttökugjöld í Garmin Eldslóðinni eru ekki endurgreidd en hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu á meðan rafræn skráning er opin. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld keppna fram á næsta ár.
 - Ef Eldslóðin fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í keppnina ekki verða endurgreidd.
 
Að viðauka við keppnisreglur og skilmála Garmin Eldslóðarinnar skulu allir keppendur skuldbinda sig til að:
- Hafa stundað viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
 - Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
 - Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda ENGU rusli á leiðinni nema við drykkjarstöðvar í ruslatunnur.
 - Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
 - Hafa með sér næga næringu og vökva til að klára keppnina.
 - Sýna öðrum keppendum og vegfarendum í brautinni virðingu og tillitssemi á leiðinni.
 - Hafa keppnisnúmer ávallt sýnileg allan tímann.
 - Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð og þar til önnur viðeigandi hjálp hefur borist.
 - Keppnisstjóri og framkvæmdastjórn keppninnar ber ekki ábyrgð á keppendum vegna utanaðkomandi þátta eins og veðri eða náttúruhamfara (Force Majeure).
 - Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi koma upp.
 - Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.
 - Keppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stöðva keppnina vegna ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi aðstæðna.
 
Allar reglur Eldslóðarinnar er hægt að finna hér.
Umgjörð og dagskrá Garmin Eldslóðarinnar er hægt að finna hér.


                    
                    
                    
                    



      

