KIA Gullhringurinn – Skilmálar

KIA Gullhringurinn áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum fyrirvaralaust.

  1. KIA Gullhringurinn ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í KIA Gullhringnum, hvorki á meðan keppninni stendur né í tengslum við hana. Þá ábyrgist KIA Gullhringurinn eða starfsfólk þess, sjálfboðaliðar og samstarfsaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt, andlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku í keppninni.
  2. Þátttökugjöld í KIA Gullhringurinn eru ekki endurgreidd en hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu á meðan rafræn skráning er opin. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld keppna fram á næsta ár.
  3. Ef KIA Gullhringurinn fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í keppnina ekki verða endurgreidd.

Að viðauka við keppnisreglur og skilmála KIA Gullhringsins skulu allir keppendur skuldbinda sig til að:

  1. Hafa stundað viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
  2. Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
  3. Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda ENGU rusli á leiðinni nema við drykkjarstöðvar í ruslatunnur.
  4. Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
  5. Hafa með sér næga næringu og vökva til að klára keppnina.
  6. Sýna öðrum keppendum og vegfarendum í brautinni virðingu og tillitssemi á leiðinni.
  7. Hafa keppnisnúmer ávallt sýnileg allan tímann.
  8. Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð og þar til önnur viðeigandi hjálp hefur borist.
  9. Keppnisstjóri og framkvæmdastjórn keppninnar ber ekki ábyrgð á keppendum vegna utanaðkomandi þátta eins og veðri eða náttúruhamfara (Force Majeure).
  10. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi koma upp.
  11. Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.
  12. Keppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stöðva keppnina vegna ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi aðstæðna.

Allar reglur KIA Gullhringsins er hægt að finna hér.

Umgjörð og dagskrá KIA Gullhringsins er hægt að finna hér.

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

07.06.2024

Dagskrá 2024

28.05.2024

Upplýsingafundur um 10K og 5K í dag

28.05.2024

Snjór í efstu hlaupaleiðum

19.05.2024

Uppselt í 26km

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2024
Website by: Gasfabrik