Nýtt miðnæturhlaup í Hengill Ultra

Næsta sumar verður boðið upp á nýjar útgáfur eða flokka í Salomon Hengil Ultra Trail 2022. Í boði verða miðnætur útgáfur af 10 km, 26km og 53 km vegalengdunum. Ræsing í þá flokka verður klukkan 22:00 föstudagskvöldið 3. júní og verða aðeins 100 keppendur í 26 km og 53 km og 200 keppendur í 10 km brautina en sú braut var kynnt ný inn í sumar og sló rækilega í gegn enda mikil ævintýra slóð.

Fyrst og fremst er þetta hugsað sem vöruþróun og aukin fjölbreytni fyrir okkar fjölmörgu fasta hlaupara. Um leið dreifir þetta álaginu á brautina og tryggir þeim sem leggja upp í 106 km hlaupið á sama tíma félagsskap í brautinni.

Skráning í þessa flokka og allar vegalengdir í Salomon Hengill Ultra Trail 2022 hefst í hádeginu á miðvikudag 18. ágúst á vikingamot.is

Nánari upplýsingar um nýju flokkana:

HENGILL MIÐNÆTUR FLOKKAR
3. JÚNÍ 2022 KL. 22:00
10KM / 26KM / 53KM

HENGILL MIDNIGHT 10 KM
10 km (hámark 200 þátttakendur)
Dagsetning 3. júní 2022
Ræsing 22:00• Skráningargjald til miðnættis 30. ágúst: 5.900,- kr.
• Skráningargjald til miðnættis 5. október: 6.500,- kr.
• Skráningargjald: 7.900,- kr.

Innifalið í mótsgjaldi er þátttökumedalía og máltíð að lokinni keppni.

HENGILL MIDNIGHT 26 KM
26 km (hámark 100 þátttakendur)
Dagsetning 3. júní 2022
Ræsing 22:05• Skráningargjald til miðnættis 30. ágúst: 9.900,- kr.• Skráningargjald til miðnættis 5. október: 11.900,- kr.
• Skráningargjald: 13.900,- kr.

Innifalið í mótsgjaldi er geymsla í íþróttahúsi Hveragerðis fyrir búnaðartösku, vöktun, matur og drykkur í brautunum og vegleg þátttökumedalía

HENGILL MIDNIGHT 53 KM
53 km (hámark 100 þátttakendur)
Dagssetning 3. júní 2022
Ræsing 22:10• Skráningargjald til miðnættis 30. ágúst: 19.900,- kr.• Skráningargjald til miðnættis 5. október: 21.900,- kr.• Skráningargjald: 25.900,- kr.

Innifalið í mótsgjaldi er geymsla í íþróttahúsi Hveragerðis fyrir búnaðartösku, vöktun, matur og drykkur í brautunum. Vegleg þátttökumedalía og sérmerkt 50km “Finisher“ húfa. Glaðningur frá Ölpunum er einnig innifalin í mótsgjaldi ásamt máltíð að keppni lokinni.

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

21.05.2026

Hengill Ultra fagnar fimmtán ára sögu – eitt stærsta utanvegahlaup landsins framundan í Hveragerði

20.05.2026

Nafnabreyting á skráningu

20.05.2026

Hengill Ultra 2026 gefur bæði ITRA stig og UTMB einkunn

20.12.2025

Sérkjör frá Hertz fyrir hlaupara

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik