Hvaða leið ætlar þú að velja á Reykjavík Trail?
Reykjavík Trail býður upp á þrjár ólíkar vegalengdir þann 14. júlí 2026 og hver þeirra hefur sinn karakter.
Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í utanvegahlaupum eða leitar að meiri áskorun, þá er hægt að finna leið sem hentar þínu getustigi og markmiðum.
5 km – Fyrir byrjendur
Stutt og skemmtileg leið fyrir þau sem vilja prófa trail í fyrsta sinn eða njóta hlaupsins á sínum hraða.
15 km – Fyrir vana hlaupara
Fjölbreytt leið með góðri blöndu af hraða, hækkunum og tæknilegum köflum sem gefa alvöru trail upplifun.
25 km – Fyrir reynda hlaupara
Lengsta leiðin fer dýpra inn í dalinn og upp í meira krefjandi landslag þar sem úthald, styrkur og góð orkustjórnun skipta máli.
Allar leiðir hefjast við Rafstöðvarhúsið í Elliðaárdalnum og bjóða upp á einstaka hlaupaupplifun í hjarta Reykjavíkur.
Nú er bara spurningin: Hvaða leið verður fyrir valinu hjá þér?
Skráning fer fram á netskraning.is
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Elliðaárdalnum.
Kveðja,
Reykjavík Trail teymið








