Aðeins laust í 5k – uppselt í 29k og 10k

Uppselt í lengri vegalengdir Garmin Eldslóðarinnar – aðeins sæti laus í 5k

Garmin Eldslóðin, eitt vinsælasta utanvegahlaup ársins, fer fram næstkomandi laugardag 13. september í fallegu umhverfi Vífilsstaða og Heiðmerkur. Hlaupinu hefur verið líkt við lokahnykk sumarsins hjá hlaupurum og er orðið árviss viðburður í íslenskri hlaupamenningu.

Þátttakan er frábær þetta árið og er nú uppselt í bæði 29 km og 10 km brautirnar. Enn er þó hægt að tryggja sér sæti í nýrri 5 km braut sem kynnt var til leiks í fyrsta sinn í ár.

„Við finnum að áhuginn á utanvegahlaupum fer vaxandi með hverju ári og viljum mæta fjölbreyttum hópi hlaupara. Nýja 5 km brautin er frábært tækifæri fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í utanvegahlaupum eða vilja einfaldlega taka þátt í góðri stemningu,“ segir Einar Bárðarson, einn skipuleggjenda.

Keppendur fá að njóta einstakrar náttúru í hlaupinu, aðeins steinsnar frá borginni. Viðburðurinn hefur skapað sér sérstöðu með líflegri stemningu á rás- og endamarki. Allir keppendur fá medalíu og verðlaun eru veitt fyrir efstu sæti í hverjum flokki. Að loknu hlaupi er öllum boðið í matarvagnaveislu og eru fjölskyldur og vinir hlaupara hvött til að mæta á staðinn.

Garmin Eldslóðin veitir einnig stig samkvæmt alþjóðlegum ITRA-staðli, sem styrkir stöðu hlaupsins á alþjóðavettvangi.

Ánægðir hlauparar í Heiðmörk

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

21.05.2026

Hengill Ultra fagnar fimmtán ára sögu – eitt stærsta utanvegahlaup landsins framundan í Hveragerði

20.05.2026

Nafnabreyting á skráningu

20.05.2026

Hengill Ultra 2026 gefur bæði ITRA stig og UTMB einkunn

20.12.2025

Sérkjör frá Hertz fyrir hlaupara

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik