Brautarskoðun á sunnudag
Sunnudaginn 14. maí ætlum við að vera með æfingar í Hengil Ultra brautinni með fólki sem þekkir vel til. Þið eruð öll velkomin hvort sem þið stefnið á 10km, 26km eða lengra í sumar. Eða hreinlega ætlið ekki að hlaupa Hengil í sumar en langar bara að taka æfingu með flottum hópi
kl. 09:00 – 26km brautin
Sigurjón Ernir ætlar að hlaupa frá ráslínu í Hveragerði (fyrir framan bæjarskrifstofurnar) alla 26 km brautina upp að Ölkelduhálsi og tilbaka inn í Hveragerði.
Kl. 09:30 – Hluti af 26km brautinni
Þau sem vilja bara taka Reykjadalshlutann og upp að Ölkeldushálsi geta slegist í hóp með Sigurjóni frá Reykjadalskaffi og upp dalinn og að Ölkeldu og stoppa svo aftur við Reykjadalskaffi þegar niður er komið – þetta er um 12 km hringur.
kl. 10:00 – 10km brautin
Lagt af stað frá ráslínu við bæjarskrifstofurnar í Hveragerði. Fulltrúar frá Hengil Ultra hlaupa uppúr bænum inn í kringum Hamarinn, upp í Gufudal og niður að bæjarskrifstofunum aftur.
Sjá viðburð á Facebook
Þau sem vilja gista á Hótel Örk geta nýtt sér kóðann hengill2023 fyrir 15% afslátt