Eldslóðin er nú „NOW Eldslóðin“

NOW Eldslóðin
NOW Eldslóðin

Nýr “name-spnsor” er kominn á Eldslóðina en IcePharma og Meðbyr undirrituðu samning í dag um það að NOW Vítamín verði aðal bakhjarl Eldslóðarinnar og heitir mótið frá og með deginum í dag NOW Eldslóðin.

Við hlökkum til samstarfs við NOW Vítamín og hlökkum að sjá ykkur öll í keppninni í ár!

Eldslóðin er utanvegahlaup í fallegri og stórbrotinni náttúru Íslands, við borgarmörk!

Hlaupið er frá Vífilstöðum í Garðabæ, meðfram Vífilstaðavatni, inn að Búrfellsgjá og þar upp að Helgafelli og aftur tilbaka a Vífilstöðum.

Keppnisbrautin er hugsuð þannig að um leið og hlaupið sé áskorun fyrir lengra komna, sé brautin um leið falleg og auðfarin, með minni hækkun en gengur og gerist í stóru utanvegahlaupunum. Þá eru líka hugsaðar tvær styttri keppnisbrautir með það að leiðarljósi að í lok sumars geti þetta verið skemmtilegt uppskeruhlaup þar sem byrjendur og lengra komnir geti átt frábæran dag saman í Heiðmörkinni.

Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á 100KM liðakeppni sem er skipt upp þannig að fjórir keppendur hlaupa 25KM hringinn og gildir samanlagður tími þeirra í liðakeppni en að sjálfsögðu virkar tíminn þeirra líka sem einstaklings tími.

Eins og í öllum hinum Víkingamótunum, verður lögð áhersla á öryggi, umgjörð og gleði.

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

01.12.2023

Skráning í Hengil Ultra hefst í dag

23.09.2023

Dagskrá NOW Eldslóðin 2023

30.08.2023

Landsnet MTB viðburður færður vegna veðurs

30.08.2023

NOW Eldslóðin færð vegna veðurs

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2024
Website by: Gasfabrik