Mikilvægar upplýsingar fyrir Adidas Boost
Afhending keppnisgagna, bílastæði, tímasetningar, drykkjarstöð og annað sem gott er að vita áður en ræst er kl. 20:00
Adidas Boost fer fram á morgun miðvikudaginn 29. júlí og styttist óðum í að við leggjum af stað. Hér eru helstu upplýsingar sem gott er að hafa í huga áður en þú mætir á ráslínuna.
📦 Afhending keppnisgagna
Þú getur sótt hlaupanúmerið þitt á tveimur stöðum:
Útilíf – Skeifan 11d
🕛 Miðvikudagur 29. júlí kl. 12:00–17:00
Við rásmark Adidas Boost
🕕 Miðvikudagur 29. júlí kl. 18:00–19:30
Við hvetjum alla til að mæta tímanlega til að forðast bið rétt fyrir ræsingu.
🏁 Dagskrá
- 20:00 – Ræsing Adidas Boost
- 21:00 – Verðlaunaafhending
- Að henni lokinni verða glæsilegir þátttökuvinningar dregnir út meðal hlaupara.
💧 Drykkjarstöð
Drykkjarstöðin verður staðsett við Víkingaheimilið. Þar fara allir keppendur um tvisvar, þar sem leiðin liggur fram hjá drykkjarstöðinni bæði á útleið og heimleið.
🚗 Bílastæði og samgöngur
Vegna framkvæmda við Elliðaárstöð verður ekki hægt að leggja bílum við rás- og marksvæðið.
Við mælum með að leggja við:
- Mjódd
- Árbæjarsafn
- Víkingaheimilið
- Höfðabakka / iðnaðarsvæðið
- Árbæjarskóla og nærliggjandi götur (virðið gildandi bílastæðareglur)
Við hvetjum einnig þátttakendur til að nýta Strætó, hjóla eða ganga á keppnissvæðið þegar mögulegt er.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og sjá ykkur njóta einnar hraðustu og skemmtilegustu 10 km brautar landsins.
Sjáumst á ráslínunni!
– Adidas Boost teymið










