Nýr kafli fyrir Adidas Boost
Adidas Boost gengur nú inn í nýjan kafla með nýjum mótshaldara og nýju skráningarkerfi.
Nýir umsjónaraðilar hlaupsins eru Víkingamótin, sem hafa um árabil staðið að skipulagningu hlaupa og utanvegaviðburða á Íslandi, þar á meðal Hengill Ultra Trail, einu rótgrónasta utanvegahlaupi landsins.
Markmið okkar er að byggja áfram á þeim góða grunni sem lagður hefur verið og þróa Adidas Boost áfram sem skemmtilegt, aðgengilegt og vandað götuhlaup fyrir hlaupara á öllum getustigum.
Með þessum breytingum flyst skráningarkerfið yfir á netskraning.is sem verður nýr skráningarvettvangur hlaupsins.
Mikilvægt fyrir þau sem þegar hafa skráð sig:
Allar gildar skráningar sem áður voru gerðar halda gildi sínu og verða færðar yfir í nýja kerfið.
Við hlökkum til að taka á móti hlaupurum 29. júlí í Elliðarárdalnum og halda áfram að byggja upp einstaka stemningu sem hefur einkennt Adidas Boost frá upphafi.








