Garmin Eldslóðin í Garðabæ eftir 10 daga

Garmin Eldslóðin fer fram í sjöunda sinn laugardaginn 12. september 2026, en hlaupið var fyrst haldið árið 2020. Á þeim tíma hefur Eldslóðin þróast úr nýju utanvegahlaupi við borgarmörkin í einn af föstu viðburðunum á hlaupadagatali landsins.


Heiðurinn af Eldslóðarbrautinni á Friðleifur Friðleifsson, þaulreyndur utanvegahlaupari og umsjónarmaður landsliðs FRÍ í utanvegahlaupum. Leiðirnar liggja frá Vífilsstöðum og inn á fjölbreyttar slóðir í nágrenni Heiðmerkur, Búrfellsgjár og Helgafells.


Vöxtur hlaupsins hefur verið mikill síðustu ár. Árið 2022 tóku um 140 hlauparar þátt, 198 árið eftir og 335 árið 2024. Í fyrra kláruðu síðan 543 hlauparar vegalengdirnar þrjár, 5, 10 og 29 km. Þátttakan hefur þannig nær fjórfaldast frá 2022.


Margir af sterkustu hlaupurum landsins hafa sett mark sitt á Eldslóðina. Kári Steinn Karlsson vann lengstu leiðina árið 2023 og Þorsteinn Roy Jóhannsson hefur unnið hana tvisvar. Andrea Kolbeinsdóttir hefur einnig tvívegis unnið kvennaflokkinn og árið 2025 varð hún fyrsta konan til að fara 29 km leiðina undir tveimur klukkustundum þegar hún kom í mark á 1:59:31.


Hraðasti opinberi tími karla á 29 km leiðinni er frá því í fyrra þegar Þorbergur Jónsson sigraði á 1:51:16.
Í Garmin Eldslóðinni 2026 verður aftur boðið upp á 5 km, 10 km og 29 km.

Skráning er hafin og mótið fer fram laugardaginn 12. september

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

10.10.2026

Hengill Ultra 2027 – forskráning opnar í 72 klukkustundir

15.09.2026

Frábær Garmin Eldslóðin í blíðskaparveðri við Vífilsstaði

08.09.2026

Dagskrá Garmin Eldslóðin 2026

08.09.2026

325 hlauparar skráðir – ætlar þú að vera með?

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik