Mikilvægar upplýsingar fyrir Adidas Boost

Afhending keppnisgagna, bílastæði, tímasetningar, drykkjarstöð og annað sem gott er að vita áður en ræst er kl. 20:00

Adidas Boost fer fram á morgun miðvikudaginn 29. júlí og styttist óðum í að við leggjum af stað. Hér eru helstu upplýsingar sem gott er að hafa í huga áður en þú mætir á ráslínuna.

📦 Afhending keppnisgagna

Þú getur sótt hlaupanúmerið þitt á tveimur stöðum:

Útilíf – Skeifan 11d
🕛 Miðvikudagur 29. júlí kl. 12:00–17:00

Við rásmark Adidas Boost
🕕 Miðvikudagur 29. júlí kl. 18:00–19:30

Við hvetjum alla til að mæta tímanlega til að forðast bið rétt fyrir ræsingu.

🏁 Dagskrá

  • 20:00 – Ræsing Adidas Boost
  • 21:00 – Verðlaunaafhending
  • Að henni lokinni verða glæsilegir þátttökuvinningar dregnir út meðal hlaupara.

💧 Drykkjarstöð

Drykkjarstöðin verður staðsett við Víkingaheimilið. Þar fara allir keppendur um tvisvar, þar sem leiðin liggur fram hjá drykkjarstöðinni bæði á útleið og heimleið.

🚗 Bílastæði og samgöngur

Vegna framkvæmda við Elliðaárstöð verður ekki hægt að leggja bílum við rás- og marksvæðið.

Við mælum með að leggja við:

  • Mjódd
  • Árbæjarsafn
  • Víkingaheimilið
  • Höfðabakka / iðnaðarsvæðið
  • Árbæjarskóla og nærliggjandi götur (virðið gildandi bílastæðareglur)

Við hvetjum einnig þátttakendur til að nýta Strætó, hjóla eða ganga á keppnissvæðið þegar mögulegt er.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og sjá ykkur njóta einnar hraðustu og skemmtilegustu 10 km brautar landsins.

Sjáumst á ráslínunni!

– Adidas Boost teymið

veðurspáin er góð fyrir Adidas Boost hlaupið

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

10.10.2026

Hengill Ultra 2027 – forskráning opnar í 72 klukkustundir

15.09.2026

Frábær Garmin Eldslóðin í blíðskaparveðri við Vífilsstaði

08.09.2026

Dagskrá Garmin Eldslóðin 2026

08.09.2026

325 hlauparar skráðir – ætlar þú að vera með?

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik