boost Ultra - Utanvegahlaup
Næsta keppni
29. júlí 2026

Adidas Boost hlaupið

Skemmtilegt hlaup á hraðri braut

Útilíf Boost - Utanvegahlaup

Adidas Boost er skemmtilegt 10 km götuhlaup í hjarta Reykjavíkur, á einni hröðustu og vinsælustu hlaupaleið landsins.

Hvort sem markmiðið er að setja nýtt persónulegt met, taka góða æfingu eða njóta þess að hlaupa í fallegu umhverfi, býður Adidas Boost upp á kjöraðstæður fyrir hlaupara á öllum getustigum.

Leiðin  liggur um skjólgóða og fallega stíga Elliðaárdals og Fossvogsdals og er tilvalin fyrir þau sem stefna á nýtt persónulegt met eða vilja einfaldlega njóta kraftmikillar hlaupaupplifunar í hjarta Reykjavíkur.

Adidas Boost byggir á sterkri hefð og var valið annað besta götuhlaup ársins 2022 af lesendum Hlaup.is. Leiðin er löglega mæld af FRÍ.

Skoðaðu keppnina

Finndu þitt boost

  • Njóttu náttúrunnar
  • Bættu hraðann
  • Deildu gleðinni

Þar sem hraði og hlaupagleði mætast

Leið og kort

 Skoðaðu leiðarlýsingu og náðu þér í hlaupaleiðina í úrið hér að neðan.

10km Adidas Boost
Fyrir flesta
10km Fyrir flesta
106km <?php echo $textfieldMap; ?>
            af leið
10km
Dagssetning
29. júlí 2026
Ræsing
20:00

Frábær leið í fallegu umhverfi Reykjavíkur

  • Skráningargjald

    Þátttökugjald:

    Forskráðir fyrir sunnudaginn 28. júní:

    • 3.000 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2010 og fyrr2
    • Frítt fyrir 15 ára og yngri (f. 2011 og síðar)

    Skráning eftir sunnudaginn 28. júní:

    • 4.000 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 2010 og fyrr)
    • 1000 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 2011 og síðar)

    Skráningu lýkur miðvikudaginn 29. júlí kl. 19:30.

    Afhending keppnisgagna: 

    Útilíf
    Skeifan 11d
    108 Reykjavík

    Miðvikudagur 29. júlí 
    kl 12:00-17:00

    Einnig verður hægt að ná í keppnisgögn á keppnissvæðinu miðvikudaginn 29. júlí kl 18:00-19:30

  • Gögn
  • Leiðarlýsing

    Hlaupið hefst við Rafstöðvarheimilið í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal.

    Hlaupaleiðin er 10 km, löglega mæld af FRÍ. Heildarfall (lækkun) í hlaupaleið er um 9 metrar sem er löglegt, en 10 km hlaup má falla/lækka sem nemur einum metra fyrir hvern kílómetra til að teljast innan löglegra marka. Hlaupið hefst efst í Rafstöðvarbrekkunni í Elliðaárdal og hlaupið er upp Elliðaárdalinn undir brúna við stífluna, að Fylkisvelli og Árbæjarsundlaug og meðfram Fylkisvelli og síðan til hægri yfir brúna. Síðan göngustígar niður Elliðaárdalinn, alla leið að undirgöngum inn í Fossvog, framhjá Víkingsheimili, á hjólastíg mest alla leið í Fossvogsdal og snúið við rétt áður en komið er að Svartaskógi og svo göngustígur til baka, framhjá Víkingsheimili, undirgöng og beint yfir Elliðaárdalinn á Rafstöðvarveg, framhjá gömlu rafstöðinni og endasprettur áfram og aðeins inn í rafstöðvabrekkuna.

    Leiðin er teiknuð með það í huga að vera skemmtileg í flottu umhverfi að sumarkvöldi og samtímis hröð og því góð til bætinga.

  • Hæðarlýsing & drykkjarstöðvar

    Hlaupaleiðin er skemmtileg og að mestu flöt. Hefst með smá hækkun fyrstu 2 km upp Elliðaárdalinn og síðan niður í móti rúma 2 km niður að undirgöngum inní Fossvogsdalinn, nánast flatt þar fram og til baka og svo inní Elliðaárdalinn aftur. Dálítil hækkun er að endamarki en það klárar fólk með stæl. Í heild er lækkun samtals 9 metrar og því er hlaupið talið gott til bætinga í 10km.

    Adidas Boost Hæðarlýsing

     

  • Dagskrá & Bílastæði

    Start kl 20:00

Upplýsingar og efni

Umgjörð

Dagskrá

Kynntu þér dagskrána hér

Nánar hérna

Reglur

Kynntu þér reglurnar

Nánar hérna


Spurt & Svarað

  • Hvenær verða mótsgögn afhent?

    Afhending keppnisgagna:

    Miðvikudaginn 29. júlí kl 12:00-17:00
    Útilíf
    Skeifunni 11d
    Reykjavík

    Miðvikudaginn 29. júlí kl 18:00-19:30
    Á mótsvæði í Elliðaárdal

     

  • Er hægt að breyta nafni á skráningu?

    Hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu á meðan rafræn skráning er opin. Það er gert á Mínum síðum hjá netskráning.is.  Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld keppna fram á næsta ár og gjöld eru ekki endurgreidd.

boost

Skráðu þig á póstlistann!

Skráðu þig á póstlistann okkar til missa ekki af besti verðinu, tilboðum og spennandi fréttum frá Víkingamótunum!

* Nauðsynlegt
Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik