Frábær þátttaka og spennandi keppni í Hengill Ultra 2026

Hengill Ultra 2026

Hengill Ultra fór fram um helgina í 15. sinn við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður á Hengilssvæðinu. Yfir eitt þúsund hlauparar lögðu leið sína á svæðið og spreyttu sig á vegalengdum frá 5 km upp í 106 km þar sem bæði reyndir utanvegahlauparar og nýliðar tókust á við fjöll, dali, hraun og einstaka náttúrufegurð svæðisins. Hlaupið gekk vel þrátt fyrir bleytu á brautinni eftir úrkomu síðustu daga. Veður fór batnandi þegar leið á daginn og mikill fjöldi gesta lagði leið sína til Hveragerðis til að fylgjast með keppninni og taka á móti hlaupurum í mark.

Í fyrsta sinn í ár gátu áhorfendur og aðstandendur fylgst með öllum hlaupurum í 53K og 106K keppnunum á korti og fengið nákvæma staðsetningu í rauntíma ásamt skemmtilegum upplýsingum á meðan hlaupunum stóð. Þessi fídus fékk frábærar viðtökur og fengum við mikið af heimsóknum inn á síðuna.

Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.

Yfir 1.000 hlauparar tóku þátt í Hengill Ultra í ár og keppendur komu frá þrjáttíu og átta löndum til að spreyta sig á fimm vegalengdum um eitt fjölbreyttasta og fallegasta utanvegahlaupasvæði landsins.

Tómas Aron sigraði með yfirburðum í 106 kílómetrunum

Lengsta vegalengd mótsins, 106 km Hengill Ultra, reyndi verulega á þátttakendur enda um að ræða eitt erfiðasta utanvegahlaup landsins. Tómas Aron Viggósson sigraði sannfærandi á tímanum 14:34:14 eftir afar sterkt hlaup frá upphafi til enda. Mafalda Sigmarsson sigraði í flokki kvenna og kom í mark á tímanum 18:59:13.

Þorleifur Þorleifsson hafnaði í öðru sæti á 15:48:14 og Hlynur Jóhannsson tryggði sér þriðja sætið á 15:59:52. Tómas náði rúmlega klukkustundar forskoti á næsta keppanda og var einn af fáum sem hélt mjög jöfnum hraða yfir alla vegalengdina. Í öðru sæti kvenna var Christine Pich á tímanum 21:08:18 en það voru einungis hún og Mafalda sem náðu að klára brautina af þeim konum sem hófu keppni.

SætiNafnTími
1Tómas Aron Viggósson14:34:14
2Þorleifur Þorleifsson15:48:14
3Hlynur Jóhannsson15:59:52
4Tomas Jacobsen16:32:05
5Patrick Hansen16:43:22
6Egill Trausti Ómarsson17:27:21
7 1. sæti í kvennaflokkiMafalda Sigmarsson18:59:13
8Eric Lemmens19:32:33
9 2. sæti í kvennaflokkiChristine Pich21:08:18
10Óskar Fannar Vilmundarson21:13:31

Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.

Grétar sigraði 53K hlaupið

Mikil þátttaka var í 53 km hlaupinu þar sem Grétar Guðmundsson sýndi styrk sinn á tæplega fimm klukkustunda hlaupi og kom fyrstur í mark á 4:44:54.

Baráttan um næstu sæti var hörð en Sindri Pétursson varð annar á 4:57:45 og Brynjar Vilhjálmsson þriðji á 5:00:59. Athygli vakti einnig frammistaða Dalrósar Ingu Ingadóttur sem varð fimmta í heildina og fyrsta kona í mark.

SætiNafnTími
1Grétar Guðmundsson04:44:54
2Sindri Pétursson04:57:45
3Brynjar Vilhjálmsson05:00:59
4Sigfinnur Björnsson05:35:34
5 1. sæti í kvennaflokkiDalrós Inga Ingadóttir05:51:00
6Willy Blumenstein05:51:00
7Timur Fazõlov05:56:23
8Nati Noyman05:58:58
9Adam Komorowski06:01:23
10Sigurður Ísak Ævarsson06:05:51

Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.

Yfir 400 manns tóku þátt í 26K leiðinni í Hengil Ultra 2026

26 km vegalengdin var fjölmennasta keppni mótsins og þar var mikill hraði á fremstu mönnum. Egill Gunnarsson sigraði á glæsilegum tíma, 1:47:24, og var rúmum þremur mínútum á undan Árna Birni Höskuldssyni sem varð annar.

Guðni Siemsen Guðmundsson tryggði sér þriðja sætið og Hildur Aðalsteinsdóttir varð sjötta í heildina og fyrsta kona í mark.

SætiNafnTími
1Egill Gunnarsson01:47:24
2Árni Björn Höskuldsson01:50:29
3Guðni Siemsen Guðmundsson01:54:24
4Börkur Þórðarson01:58:01
5Magnús Stefánsson01:59:39
6 1. sæti í kvennaflokkiHildur Aðalsteinsdóttir01:59:56
7Sölvi Snær Egilsson02:00:22
8Sigurður Bjarnason02:01:12
9Jónas Bjartur Kjartansson02:01:36
10Magnús Helgi Sigurðsson02:02:44

Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.

Mikill hraði á 10 km brautinni

10 km hlaupið bauð upp á hraða keppni þar sem Gústaf Sæland kom fyrstur í mark á 44:40. Hallgrímur Orri Pétursson fylgdi fast á eftir í öðru sæti á 46:59 og Andri Isaksen varð þriðji.

Sandra Dís Pálsdóttir hafnaði í tíunda sæti í heildina og var jafnframt fyrsta kona í mark.

SætiNafnTími
1Gústaf Sæland00:44:40
2Hallgrímur Orri Pétursson00:46:59
3Andri Isaksen00:48:11
4Mar Thorarinsson00:48:31
5Finnur Orri Margeirsson00:48:47
6Ari Mar Fritzson00:49:05
7Óskar Ásgeirsson00:49:10
8Loftur Ásmundsson00:49:44
9Sölvi Valdimarsson00:50:36
10 1. sæti í kvennaflokkiSandra Dís Pálsdóttir00:50:48

Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.

Ungir hlauparar settu svip sinn á 5 km keppnina

Í 5 km hlaupinu var þátttaka ungra hlaupara áberandi. Marek Jerchel sigraði á tímanum 26:18 en Mehmet Tibet Altunal varð annar og Ólafur Ingi Kristinsson þriðji.

Margir af efstu keppendum voru á grunn- og unglingaskólaaldri og yngsti keppandinn var 5 ára sem lofar góðu fyrir framtíð utanvegahlaupa á Íslandi.

SætiNafnTími
1Marek Jerchel00:26:18
2Mehmet Tibet Altunal00:29:34
3Ólafur Ingi Kristinsson00:30:08
4Snorri Freyr Steinarsson00:30:15
5Lárus Jóhann Steinarsson00:30:29
6Victor de Galbert00:30:35
7 1. sæti í kvennaflokkiElísabet Þóra Óðinsdóttir00:30:38
8Elias de Galbert00:30:38
9Baldvin Snær Arndísarson00:30:43
10Þorvaldur Snorrason00:30:44

Sjáðu heildarúrslit í Hengil Ultra 2026 hérna.

Frábær helgi og sannkölluð hlaupaveisla

Keppendur fengu að takast á við fjölbreytt landslag, krefjandi klifur og tæknilega kafla sem gera Hengilssvæðið að einstökum vettvangi fyrir fjallahlaup. Mikil þátttaka, sterk afrek og frábær stemning meðal hlaupara og sjálfboðaliða gerðu mótið að eftirminnilegri upplifun fyrir alla sem að því komu.

Við þökkum öllum keppendum, styrktaraðilum okkar, Hveragerðisbæjar, starfsfólki, sjálfboðaliðum og velunnurum hjartanlega fyrir frábæra hlaupahelgi og prýðisgott 15. ára afmæli keppninnar. Keppnin er marga mánuði í undirbúningi og skilar það sér allt þegar við sjáum keppendur, vini, aðstandendur og fjölskyldur koma saman og njóta samverunnar í fallegu landslagi Hengilssvæðisins og Hveragerðis.

Sjáumst í næstu keppni 2027!

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

07.06.2026

Frábær þátttaka og spennandi keppni í Hengill Ultra 2026

05.06.2026

Hengill Ultra ræst kl 20 í kvöld

02.06.2026

Upplýsingar fyrir keppni – Hengill Ultra Trail 2026

21.05.2026

Hengill Ultra fagnar fimmtán ára sögu – eitt stærsta utanvegahlaup landsins framundan í Hveragerði

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik