Upplýsingar fyrir keppni – Hengill Ultra Trail 2026
Nú styttist í Hengill Ultra Trail 2026 og við hlökkum til að taka á móti hlaupurum frá 38 þjóðlöndum í Hveragerði um komandi helgi. Við hvetjum alla þátttakendur til að kynna sér mikilvægar upplýsingar fyrir keppni.
Afhending hlaupagagna
- Miðvikudag 3. júní kl. 16:00–18:00 Útilíf, Skeifunni 11d, Reykjavík
- Fimmtudag 4. júní kl. 12:00–18:00 Útilíf, Skeifunni 11d, Reykjavík
- Föstudag 5. júní kl. 12:00–18:00 Útilíf, Skeifunni 11d, Reykjavík
- Laugardagur 6. júní kl. 07:00-14:00 Expó í íþróttahúsinu Hveragerði
Keppnisupplýsingar fyrir allar leiðir
10km leið – keppnisupplýsingar
26km leið – keppnisupplýsingar
53km leið – keppnisupplýsingar
106km leið – keppnisupplýsingar
Bílastæði
Vegna framkvæmda við íþróttahúsið bendum við þátttakendum og áhorfendum á að leggja við Grýluvöll (gamla Hamarshallarsvæðið). Sjá bílastæðakort hér fyrir neðan.
Matur og drykkur eftir hlaup
Að hlaupi loknu fá allir þátttakendur hamborgara og drykk á marksvæðinu. Skila þarf afrifu sem er á hlaupanúmerinu merkt Máltíð/Post Race Meal.
Veitingasala verður einnig á svæðinu fyrir áhorfendur og aðstandendur sem vilja kaupa sér mat og drykk.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Hveragerði og óskum öllum góðs undirbúnings fyrir keppni.
Sjáumst á startlínunni!











