Hengill Ultra 2026 gefur bæði ITRA stig og UTMB einkunn
Þátttakendur í Hengill Ultra 2026 fá bæði ITRA Performance Index og UTMB Index score fyrir hlaupin.
UTMB Index er alþjóðlegt stigakerfi sem metur frammistöðu hlaupara í utanvegahlaupum og ultrahlaupum. Hlauparar byggja upp sinn eiginn UTMB Index með þátttöku í viðurkenndum hlaupum víðs vegar um heiminn og getur indexið nýst sem viðmið fyrir styrkleika og reynslu hlaupara innan greinarinnar.
ITRA Performance Index er sambærilegt alþjóðlegt viðmið frá International Trail Running Association (ITRA) og hefur lengi verið mikið notað innan utanvegahlaupasamfélagsins.
Í sumum utanvegahlaupum og ultrahlaupum eru gerðar kröfur um reynslu eða ákveðin viðmið til þátttöku. Í ákveðnum hlaupum bæði á Íslandi og erlendis er horft til ITRA stiga og í alþjóðlegum ultrahlaupum getur UTMB Index einnig verið notað sem viðmið við skráningu eða þátttöku.
Á síðustu árum hafa orðið breytingar á kvalifikasjónarkerfi UTMB World Series, en hlauparar geta þó áfram fengið UTMB Index score í viðurkenndum hlaupum eins og Hengill Ultra.
Við erum stolt af því að Hengill Ultra sé hluti af þessu alþjóðlega hlaupasamfélagi og hlökkum til að taka á móti hlaupurum í einstakri náttúru Hengilssvæðisins 5. og 6. júní nk.
Nánari upplýsingar:
UTMB Index: https://utmb.world/utmb-index
ITRA Performance Index: https://itra.run/









