Landsnet MTB – Skilmálar
Landsnet MTB áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum fyrirvaralaust.
- Landsnet MTB ber ekki ábyrgð á heilsu þátttakenda í Landsnet MTB, hvorki á meðan keppninni stendur né í tengslum við hana. Þá ábyrgist Landsnet MTB eða starfsfólk þess, sjálfboðaliðar og samstarfsaðilar ekki tjón, hvorki líkamlegt, andlegt né fjárhagslegt, sem þátttakendur verða fyrir vegna þátttöku í keppninni.
- Þátttökugjöld í Landsnet MTB eru ekki endurgreidd en hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu á meðan rafræn skráning er opin. Ekki er hægt að geyma þátttökugjöld keppna fram á næsta ár.
- Ef Landsnet MTB fer ekki fram vegna ófyrirsjáanlegra atburða, svo sem náttúruhamfara, veðurs o.s.frv., munu greidd þátttökugjöld í keppnina ekki verða endurgreidd.
Að auki við skilmála og keppnisreglur Landsnets MTB skulu allir keppendur skuldbinda sig til að:
- Hafa stundað viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
- Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
- Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda ENGU rusli á leiðinni nema við drykkjarstöðvar í ruslatunnur.
- Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
- Hafa með sér næga næringu og vökva til að klára keppnina.
- Sýna öðrum keppendum og vegfarendum í brautinni virðingu og tillitssemi á leiðinni.
- Hafa keppnisnúmer ávallt sýnileg allan tímann.
- Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð og þar til önnur viðeigandi hjálp hefur borist.
- Keppnisstjóri og framkvæmdastjórn keppninnar ber ekki ábyrgð á keppendum vegna utanaðkomandi þátta eins og veðri eða náttúruhamfara (Force Majeure).
- Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi koma upp.
- Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.
- Keppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stöðva keppnina vegna ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi aðstæðna.
FYRIRVARAR:
*Mótstjórn áskilur sér rétt á því að breyta brautinni fram að keppni.
*Mótstjórn áskilur sér einnig rétt til að stytta brautina ef veður aðstæður á keppnisdegi kalla á styttri keppni.
*Ákvarðanir um breytingar eru teknar með öryggi og upplifun þátttakenda að leiðarljósi.
Landsnet MTB – Fjallahjólakeppni Víkingamótanna