Dagskrá Garmin Eldslóðin 2026
Hvenær og hvar er keppnin?
Garmin Eldslóðin er haldin við Vífilsstaði í Garðabæ laugardaginn 12. september 2026. Skráning hér
Fyrir keppni
Skoðaðu hlaupaleiðirnar
Vertu vel undirbúin(n) fyrir keppnisdaginn. Skoðaðu leiðarlýsingar og sæktu GPX-skrár fyrir allar vegalengdir hér.
Afhending keppnisgagna
Fimmtudagur 10. september 2026
Kl: 12:00-18:00
Útilíf, Skeifan 11d, 108 Reykjavík
Föstudagur 11. september 2026
Kl: 12:00-18:00
Útilíf, Skeifan 11d, 108 Reykjavík
Laugardagur 12. september 2026
Kl: 09:00-10:30
Á mótsvæði við Vífilstaði Garðabæ
Keppnisdagur
Laugardagur 12. september 2026
Vífilsstaðir, Garðabær
Kl: 09:00 Mótsvæði og bílastæði við Vífilsstaði opna
Kl: 09:00 Afhending mótsgagna
Kl: 10:00 Ræsing 29 km hlaupara
Kl: 10:30 Ræsing 10 km hlaupara
Kl: 10:40 Ræsing 5 km hlaupara
Kl. 11:30 Matur og drykkur frá Funky Bhangra
Þátttakendur fá veitingar gegn framvísun hlaupanúmers og áhorfendum býðst að kaupa sér mat og drykk á staðnum.
Allir þátttakendur fá verðlaunamedalíu. Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í kvenna- og karlaflokki verða veitt þegar fyrstu þrír eru komnir í mark.
⚠💦😊ATH. KOMIÐ MEÐ EIGIN DRYKKJARMÁL ⚠💦😊
Garmin Eldslóðin fer fram í fallegri náttúru Heiðmerkur og við viljum leggja okkar af mörkum til að ganga vel um svæðið. Því verða engin einnota drykkjarmál í boði á hlaupaleiðunum. Allir þátttakendur þurfa að hafa með sér eigið fjölnota drykkjarmál, brúsa eða mjúkan drykkjarbolla.
Góða skemmtun!












