Hlauparar frá 24 löndum skráðir í Garmin Eldslóðina
Aðeins tíu dagar eru þar til Garmin Eldslóðin fer fram í Heiðmörk laugardaginn 12. september.
Alls hafa 269 hlauparar skráð sig til leiks. Þar af eru 203 þátttakendur frá Íslandi og 66 hlauparar af erlendu þjóðerni. Alls eiga því hlauparar frá 24 löndum sæti á ráslínunni.
Í Garmin Eldslóðinni er boðið upp á þrjár vegalengdir, 5 km, 10 km og 29 km, um fallegar og fjölbreyttar leiðir í Heiðmörk. Ræst verður frá Vífilsstöðum í Garðabæ og liggja leiðirnar um skóglendi, hraun og skemmtilega stíga.
Skráning er enn opin og við hlökkum til að taka á móti fjölbreyttum hópi hlaupara í Heiðmörk.









