Öll brautarmetin féllu í Garmin Eldslóðinni í fyrra
Það var hlaupið hratt í Garmin Eldslóðinni árið 2025 og brautarmet bæði karla og kvenna voru sett í öllum þremur vegalengdum mótsins.
Í 29 km hlaupinu setti Andrea Kolbeinsdóttir nýtt brautarmet kvenna á 1:59:31 og varð fyrst kvenna til að hlaupa 29 km braut Eldslóðarinnar á undir tveimur klukkustundum. Í karlaflokki setti Þorbergur Jónsson einnig nýtt brautarmet þegar hann kom í mark á 1:51:16.
Í 10 km hlaupinu setti Daníel Snær Eyþórsson nýtt brautarmet karla með tímanum 38:07. Guðlaug Edda Hannesdóttir hljóp á 40:22 og setti nýtt brautarmet kvenna.
Ný 5 km leið var hlaupin í fyrsta sinn árið 2025 og því settu fyrstu sigurvegararnir jafnframt fyrstu brautarmetin í vegalengdinni. Leó Þórarinsson sigraði á 25:33 og Katla Rut Kluvers vann kvennaflokkinn á 25:55.
Brautarmetin sem bíða hlaupara í Garmin Eldslóðinni 2026 eru því:
29 km: Þorbergur Jónsson 1:51:16 / Andrea Kolbeinsdóttir 1:59:31
10 km: Daníel Snær Eyþórsson 38:07 / Guðlaug Edda Hannesdóttir 40:22
5 km: Leó Þórarinsson 25:33 / Katla Rut Kluvers 25:55
Garmin Eldslóðin 2026 fer fram laugardaginn 12. september. Þá kemur í ljós hvort metin frá síðasta ári fá að standa – eða hvort ný nöfn verða skráð í sögubækurnar.
Skráning í Garmin Eldslóðin 2026











