Þar sem borgin mætir náttúrunni

Reykjavík Trail Hlaup

Reykjavík Trail býður upp á einstaka hlaupaupplifun í hjarta höfuðborgarinnar.

Hlaupið fer fram í Elliðaárdalnum þann 9. júlí 2026, þar sem náttúra, áskorun og hlaupagleði mætast á fjölbreyttum slóðum. Þrátt fyrir að vera aðeins örfáum mínútum frá miðborg Reykjavíkur gefur dalurinn hlaupurum tækifæri til að upplifa alvöru utanvegahlaup í fallegu og fjölbreyttu umhverfi.

Leiðirnar bjóða upp á fjölbreytt landslag, allt frá mjúkum skógarstígum og grónum slóðum yfir í tæknilegri kafla og náttúrulegar hindranir sem gera hlaupið lifandi, skemmtilegt og krefjandi.

Þrjár vegalengdir í boði

Í boði eru þrjár vegalengdir sem henta mismunandi getustigi hlaupara:

5 km – Fyrir byrjendur og þau sem vilja stíga sín fyrstu skref í utanvegahlaupum
15 km – Fyrir vana hlaupara sem vilja fjölbreytta og krefjandi leið
25 km – Fyrir reynda hlaupara sem vilja lengri áskorun og meiri upplifun

Reykjavík Trail er kjörið tækifæri fyrir þau sem vilja brjóta upp hversdaginn, hreyfa sig í náttúrulegu umhverfi og upplifa aðra hlið á Reykjavík. Hvort sem markmiðið er að keppa, bæta sig eða einfaldlega njóta hlaupsins, þá býður Reykjavík Trail upp á hlaupaupplifun þar sem borg og náttúra renna saman.

Skoðaðu dagskrána hérna

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

23.06.2026

Þar sem borgin mætir náttúrunni

07.06.2026

Frábær þátttaka og spennandi keppni í Hengill Ultra 2026

05.06.2026

Hengill Ultra ræst kl 20 í kvöld

02.06.2026

Upplýsingar fyrir keppni – Hengill Ultra Trail 2026

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik