Hengill Ultra – Skyldubúnaður
Mikilvægt er að hlauparar kynni sér skyldubúnað fyrir þátttöku í Hengil Ultra
Skyldubúnaður – 106 km
- Bakpoki sem tekur allan skyldubúnað í hlaupinu.
- Farsími/snjallsími (setja símanúmer öryggisstjóra í minni). Kveikt skal vera á símanum á meðan þátttakandi er í brautinni og hann skal vera fullhlaðinn við upphaf hlaups.
- Plast- eða gúmmíglas til að drekka úr.
- Flöskur eða vatnsblaðra sem tekur að minnsta kosti 1 lítra.
- Höfuðljós með auka rafhlöðum. Mælt er með að ljósið sé vatnshelt og að minnsta kosti 200 lumen.
- Álteppi, að lágmarki 1,4 × 2 metrar.
- Flauta (neyðarflauta).
- Íþróttateip sem hægt er að nota sem plástur eða til vafnings.
- Matur – að minnsta kosti 800 kcal (gel, orkustykki o.s.frv.).
- Jakki með áfastri hettu. Vatns- og vindheldur jakki sem andar.
- Þátttakandi ber ábyrgð á því að jakki sé í lagi, þ.e. bæði vind- og vatnsheldur.
- Síðar buxur eða hlaupabuxur, EÐA buxur og kálfapressur sem ná saman.
- Derhúfa eða Buff®.
- Húfa.
- Auka hlýr bolur eða síðerma lag (ekki úr bómull).
- Má vera vindheldur jakki, en hann kemur ekki í stað vatns- og vindhelds jakka.
- Hanskar eða vettlingar.
- Vatnsheldar utanyfirbuxur.
Skyldubúnaður – 53 km
- Farsími/snjallsími (setja símanúmer öryggisstjóra í minni). Kveikt skal vera á símanum á meðan þátttakandi er í brautinni og hann skal vera fullhlaðinn við upphaf hlaups.
- Plast- eða gúmmíglas til að drekka úr.
- Álteppi, að lágmarki 1,4 × 2 metrar.
- Flauta (neyðarflauta).
- Jakki með áfastri hettu. Vatns- og vindheldur jakki sem andar.
- Þátttakandi ber ábyrgð á því að jakki sé í lagi, þ.e. bæði vind- og vatnsheldur.
- Vatnsheldar utanyfirbuxur.
Athugið: Hlauphaldari áskilur sér rétt til að draga úr eða fella niður hluta af skyldubúnaði sem hlaupari þarf að bera með sér með hliðsjón af aðstæðum og veðri á keppnisdegi.
Smelltu hér til að lesa reglur og skilmála varðandi þátttöku í Hengil Ultra Trail.








