Gagnaafhending og hlauparakvöld í Útilíf

Útilíf býður alla hlaupara og áhugasama velkomna á skemmtilegan og fræðandi viðburð í verslun þeirra í Skeifunni 11, miðvikudaginn 4. júní kl 17, í aðdraganda Hengil Ultra.

Andrea Kolbeinsdóttir og Þorsteinn Roy verða á staðnum og svara spurningum um:
Næringu og drykkju fyrir og í keppni
Undirbúning og rútínu fyrir keppnisdag
Og þau svara síðan spurningum úr sal

Friðleifur Friðleifsson fer yfir brautina.

Bárður Árnason og Þorsteinn Tryggvi Másson brautarstjórar Hengil Ultra munu síðan sjá um öryggis kynningu fyrir keppendur.

🎥 Viðburðinum verður streymt á Facebook síðu Hengil Ultra en við hvetjum alla til að mæta, taka hlaupanúmerið og fá góð ráð fyrir keppnisdaginn!

🎁 Happdrætti á staðnum með flottum vinningum
🏃‍♀️ 20% afsláttur af öllum hlaupavörum á meðan á gagnaafhendingunni stendur

Komdu og fáðu númerið þitt, spjallaðu við hlaupara og upplifðu alvöru stemningu fyrir Hengil Ultra!

Hlökkum til að sjá ykkur! 

Afhending gagna Hengill Ultra Trail 2025

Miðvikudagur 4. júní, Reykjavík
Kl. 16:00-18:00 Afhending gagna í versluninni Útilíf, Skeifan 11d, 108 Reykjavík
Kl. 17:00 Brautarfundur og hlauparakvöld í Útilíf, sjá viðburð hér

Fimmtudagur 5. júní, Reykjavík
Kl. 12:00-18:00 Afhending gagna í versluninni Útilíf, Skeifan 11d, 108 Reykjavík

Föstudagur 6. júní, Reykjavík
Kl. 12:00-18:00 Afhending gagna í í versluninni Útilíf, Skeifan 11d, 108 Reykjavík

Laugardagur 7. júní Hveragerði
Kl. 07:00-13:30 Afhending gagna í Expó höllinni, íþróttahúsinu Hveragerði

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

22.06.2026

Nýr kafli fyrir Reykjavík Trail

07.06.2026

Frábær þátttaka og spennandi keppni í Hengill Ultra 2026

05.06.2026

Hengill Ultra ræst kl 20 í kvöld

02.06.2026

Upplýsingar fyrir keppni – Hengill Ultra Trail 2026

Sponsor Salomon
Sponsor 66 North
Sponsor Hertz Íslandi
Sponsor Garmin búðin á Íslandi

Sponsor Powerade
Sponsor Coca Cola
Sponsor Víking Brugghús
Sponsor Bose
Sponsor Útilíf
Sponsor SS
Sponsor Snickers
Sponsor Holtakjúklingur
Sponsor Buff
Sponsor Snickers Workwear

Sponsor Íslenska Gámafélagið
Sponsor Samskip
Sponsor Byko

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2026
Website by: Gasfabrik