NOW Eldslóðin – Reglur

Reglur fyrir þátttakendur í NOW Eldslóðinni byggja á leiðbeiningum ITRA um framkvæmd utanvegahlaupa. Eldslóðin 29K og Eldslóðin 10K eru fjallahlaup. Mikilvægt er að þátttakendur fylgi reglum mótshaldara og tryggi þannig bæði eigið öryggi og öryggi annarra þátttakenda.

Lengd og erfiðleikastig hlaupanna, veðurfar og náttúran gerir miklar kröfur til þátttakenda. Mótshaldari getur frestað hlaupi eða breytt leiðarvali ef framkvæmd hlaupsins er ekki möguleg samkvæmt skipulagi. Þátttakendur ákveða hvort þeir hlaupa þrátt fyrir þoku eða önnur slæm veðurskilyrði.

Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér þær reglur sem gilda í NOW Eldslóðin og fylgja þeim. Reglurnar snerta skráningu, öryggi og aðbúnað þátttakenda fyrir, á meðan og eftir hlaup. Þá eiga reglurnar að tryggja að þátttakendur og starfsfólk hugi að viðkvæmri náttúru, leiðarval taki tillit til gróðurfars, merktra gönguleiða og að rusl og úrgangur sé ekki skilinn eftir.

NOW Eldslóðin

  • Eldslóðin 29K er 29 km fjallahlaup
  • Eldslóðin 10K er 10 km langt fjallahlaup

1. Skráning

Almennar reglur um skráningu, endurgreiðslu o.fl. má finna á heimasíðu hlaupsins.

Við skráningu þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað við samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið.

2. Skilmálar sem þátttakendur þurfa að samþykkja

Með undirritun minni staðfesti ég eftirfarandi:

Ég er í nægilega góðu ástandi bæði líkamlega og andlega til að taka þátt í og ljúka Eldslóðinni.

Ég staðfesti að ég hef áttað mig á erfiðleikastigi hlaupanna sem fara fram á svæðum þar sem veður getur verið slæmt og færð erfið. 

Ég hef kynnt mér tímamörk sem gilda í hlaupinu fyrir ræsingu hlaupsins. Ég veit að allir þeir sem ekki ná tímamörkum verða stöðvaðir (án undanþágu).

Ég skil að hlutverk framkvæmdaaðila og starfsfólks hlaupsins felst ekki í að „bjarga“ þátttakendum sem ekki eru nægjanlega vel undirbúnir m.t.t. hlaupaþjálfunar, næringu eða hvort þá vanti viðeigandi útbúnað. Öryggi hvers hlaupara er á hans eigin ábyrgð og hann þarf að hafa færni til að takast á við óvæntar aðstæður.

Ég hef lesið og skilið reglur hlaupsins og samþykki þær.

Ég samþykki að fara eftir þeim leiðbeiningum sem starfsfólk hlaupsins leggur til og þigg þá aðstoð sem þau álíta að þurfi vegna öryggis míns og annarra.

Sem þátttakandi í Eldslóðinni afsala ég mér öllum rétti til skaðabóta frá skipuleggjendum hlaupsins, starfsfólki og öðrum samstarfsaðilum hlaupsins, vegna meiðsla, veikinda, slyss, eða annarra ófyrirsjáanlegra atvika sem ég gæti orðið fyrir í Eldslóðinni.

3. Hlaupaleiðin í Eldslóðinni er í upplandi borgarinnar

Óheimilt er með öllu að kasta frá sér rusli, fatnaði eða búnaði á leiðinni og algjört bann er við losun mannlegs úrgangs utan salernis.

Hlauparar verða að vera með sín eigin glös eða brúsa til að nota á drykkjarstöðvum. Ekki er boðið upp á einnota pappaglös á drykkjarstöðvum.

4. Keppnisreglur

  • Þátttakendur tryggja að þeir séu líkamlega og andlega hæfir og með nægan undirbúning að baki til að hlaupa það hlaup sem þeir hafa skráð sig í og innan tilskilinna tímamarka.
  • Þátttakendur fara eftir fyrirmælum sem tilgreind eru um fatnað og búnað og skulu þeir hafa meðferðis viðeigandi fatnað.l
  • Þátttakendur þurfa að hafa keppnisnúmer sýnilegt framan á sér til þess að auðvelda og flýta skráningu og til að starfsmenn viti hverja á að þjónusta.
  • Tímatökuflaga er aftan á keppnisnúmeri og ber þátttakendum að gæta þess að gera ekkert sem gæti skaðað virkni flögunnar.
  • Til að fá skráðan tíma og í öryggisskyni skulu allir þátttakendur fara yfir tímatökumottur í rásmarki, á tékkpunktum og í endamarki.
  • Þátttakendur sem neyðast til að hætta í hlaupinu á miðri leið vegna veikinda eða meiðsla, er skylt að gefa sig fram við svæðisstjóra hlaupsins á hverjum stað.
  • Óheimilt er að þiggja utanaðkomandi aðstoð einhvers sem ekki er skráður þátttakandi í hlaupið nema í neyðartilvikum.
  • Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að neita utanaðkomandi aðstoð nema um neyðartilvik sé að ræða.
  • Það er á ábyrgð hvers þátttakanda að hlaupa ekki með utanaðkomandi hlaupara.
  • Hver og einn þátttakandi þarf að bera sinn eigin farangur, rusl og drykkjarmál.  Óheimilt er að losa sig við búnað og fatnað sem keppendur hafa meðferðis.
  • Þátttakendur skulu taka tillit til annarra þátttakenda.
  • Þátttakendur mega aðstoða aðra þátttakendur með öryggi sitt og annarra í huga.
  • Mótshaldari getur vísað frá keppni hverjum þeim sem fara ekki eftir reglum hlaupsins.

5. Viðurlög

Þátttakendur sem ekki fara eftir reglum hlaupsins eiga á hættu að verða skráðir úr hlaupinu.

Þeir sem ekki fara eftir settum fyrirmælum verða ábyrgir fyrir þeim kostnaði sem til fellur við leit og/eða umönnun björgunarsveita og annarra starfsmanna.

6. Réttur skipuleggjenda Eldslóðar

Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir utanaðkomandi áhrifum á hlaupara. Það á við um veður, náttúruhamfarir, umferð fólks og farartækja eða annað óvænt sem getur haft áhrif á þátttakendur.

Skipuleggjendur geta afskráð og stöðvað þátttakanda sem ekki er í fatnaði eða hefur yfir að ráða nauðsynlegum búnaði sem hæfir aðstæðum.

Skipuleggjendur geta afskráð og vísað úr hlaupinu hverjum þeim sem skapar hættu fyrir sjálfan sig og/eða aðra eða fer ekki eftir reglum hlaupsins.

Skipuleggjendur eru ekki ábyrgir fyrir veikindum eða slysum þátttakenda, til og frá mótsstað og meðan á hlaupi stendur. Þátttakendur eru hvattir til að leita aðstoðar starfsmanna hlaupsins ef slys eða veikindi koma upp. 

Þátttakendur eru alltaf á eigin ábyrgð þrátt fyrir að þeir þiggji aðstoð starfsmanna hlaupsins.

Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að aflýsa hlaupinu með stuttum fyrirvara vegna veðurs eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna sem geta skapað hættu fyrir þátttakendur.

7. KÆRUR

Þátttakendur sem telja að á sér hafi verið brotið geta lagt fram kæru til mótshaldara.

Kæra þarf að berast skriflega til hlaupstjóra á meðan hlaupið stendur yfir.

Kæra vegna heildarúrslita í karla- og kvenna flokki þarf að berast í síðasta lagi kl. 20:00 daginn eftir hlaupadag.

Að auki við skilmála og keppnisreglur NOW Eldslóðarinnar skulu allir keppendur skuldbinda sig til að:

  1. Hafa stundað viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
  2. Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
  3. Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda ENGU rusli á leiðinni nema við drykkjarstöðvar í ruslatunnur.
  4. Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
  5. Hafa með sér næga næringu og vökva til að klára keppnina.
  6. Sýna öðrum keppendum og vegfarendum í brautinni virðingu og tillitssemi á leiðinni.
  7. Hafa keppnisnúmer ávallt sýnileg allan tímann.
  8. Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð og þar til önnur viðeigandi hjálp hefur borist.
  9. Keppnisstjóri og framkvæmdastjórn keppninnar ber ekki ábyrgð á keppendum vegna utanaðkomandi þátta eins og veðri eða náttúruhamfara (Force Majeure).
  10. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi koma upp.
  11. Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.
  12. Keppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stöðva keppnina vegna ófyrirsjáanlegra utanaðkomandi aðstæðna.

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

01.12.2023

Skráning í Hengil Ultra hefst í dag

23.09.2023

Dagskrá NOW Eldslóðin 2023

30.08.2023

Landsnet MTB viðburður færður vegna veðurs

30.08.2023

NOW Eldslóðin færð vegna veðurs

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2024
Website by: Gasfabrik