Gagnaafhending og hlauparakvöld í Útilíf

Útilíf býður alla hlaupara og áhugasama velkomna á skemmtilegan og fræðandi viðburð í verslun þeirra í Skeifunni 11, miðvikudaginn 4. júní kl 17, í aðdraganda Hengil Ultra.

Andrea Kolbeinsdóttir og Þorsteinn Roy verða á staðnum og svara spurningum um:
Næringu og drykkju fyrir og í keppni
Undirbúning og rútínu fyrir keppnisdag
Og þau svara síðan spurningum úr sal

Friðleifur Friðleifsson fer yfir brautina.

Bárður Árnason og Þorsteinn Tryggvi Másson brautarstjórar Hengil Ultra munu síðan sjá um öryggis kynningu fyrir keppendur.

🎥 Viðburðinum verður streymt á Facebook síðu Hengil Ultra en við hvetjum alla til að mæta, taka hlaupanúmerið og fá góð ráð fyrir keppnisdaginn!

🎁 Happdrætti á staðnum með flottum vinningum
🏃‍♀️ 20% afsláttur af öllum hlaupavörum á meðan á gagnaafhendingunni stendur

Komdu og fáðu númerið þitt, spjallaðu við hlaupara og upplifðu alvöru stemningu fyrir Hengil Ultra!

Hlökkum til að sjá ykkur! 

Deildu þessari grein:

Nýjustu fréttirnar

27.05.2025

Gagnaafhending og hlauparakvöld í Útilíf

23.05.2025

Nafnabreytingar á skráningum

22.05.2025

Tilboð á Hótel Örk og Gróðurhúsinu

21.05.2025

Götugrill í höndum Kjötbúrsins

Hafðu samband

© Víkingamótin 2020 - 2025
Website by: Gasfabrik