Fjórar stórkostlegar keppnir í hjólasporti og hlaupum.
Mótaröðin byrjar með stærsta utanvegarhlaupi landsins Hengill Ultra Trail. Næst er það umfangsmesta, vinsælasta og skemmtilegasta hjólreiðakeppni landsins KIA Gullhringurinn. Allt frá fjölskylduskemmtun yfir í harða keppni þar sem keppendur keppa við sig og aðra.
Því næst er það NOW Eldslóðinni utanvegarhlaupið, hlaupið verður frá Vífilstöðum meðfram Vífilstaðavatni og inn að Búrfellsgjá. Síðast en ekki síst lýkur Víkingamótaröðinni á utanvegarhjólreiðakeppnin Landsnet MTB, sú keppni er utanvegar hjólreiðakeppni með mismunandi og krefjandi vegaleiðum.
Kíktu á keppnirnar hér að ofan og skráðu þig til leiks!
Vertu flott/ur í Víkingamóta varningi! Við byrjum á því að bjóða upp á gæða boli merktum KIA Gull og Hengil Ultra keppnunum ásamt afar handhægum drykkjarílátum merktum Víkingamótunum. Tilvalið fyrir þau sem vilja eiga minjagrip um góðar stundir í góðum félagsskap og minnast árangursins og keppnisdagsins.
Við prentum í takmörkuðu upplagi fyrir hvert keppnisár og erum ekkert að grínast með fyrsta droppið þar sem við erum með gyllt merki til boða!
Gríptu þitt eintak úr fyrsta upplagi á meðan birgðir endast!